Logo Competition

Misnotkun Véla og verkfæra á markaðsráðandi stöðu

Analysis

Með ákvörðun sinni komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið Vélar og verkfæri hafi misnotað markaðsráðandi stöðu við sölu á efni til að framleiða höfuðlyklakerfi og þar með brotið gegn ákvæði 11. gr. samkeppnislaga No. 44/2005. Misnotkun Véla og verkfæra fólst í einkakaupaákvæðum sem gerð voru við þjónustuaðila höfuðlyklakerfa sem keyptu efni til að framleiða höfuðlyklakerfi frá Vélum og verkfærum. Þannig kom fyrirtækið í veg fyrir að þjónustuaðilar höfuðlyklakerfa flyttu inn og seldu höfuðlyklakerfi frá öðrum framleiðendum en ASSA í Svíþjóð og vann ennfremur gegn því að aðrir erlendir framleiðendur næðu fótfestu á íslenskum markaði.

Í ákvörðuninni er komist að þeirri niðurstöðu að markaður fyrir sölu á efnum til að framleiða höfuðlyklakerfi sé sérstakur markaður og nátengur markaði fyrir sölu á höfuðlyklakerfum beint til notenda. Vélar og verkfæri eru í einokunarstöðu á markaði málsins og skópu með einkakaupaákvæðum sínum verulega aðgangshindrun.

Það var niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að brot fyrirtæksins væri alvarlegt og var fyrirtækinu gert að greiða kr. 15.000.000.- í stjórnvaldssekt.

Decisions
Case number

14 / 2009

Date
8th April 2009
Company

Machines and tools

Industries

Consumer goods, operating supplies, etc.

Machines and equipment

Subjects

Market dominance

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.