Logo Competition

Reglubundin upplýsingaskylda Stjörnugríss hf.

Analysis

Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 3/2011, Samruni Stjörnugríss hf. við Rekstrarfélagið Braut ehf. og LS2 ehf. var komist að þeirri niðurstöðu að eftir yfirtöku Stjörnugríss hf. á svínabúunum hafi félagið orðið markaðsráðandi á markaðnum fyrir svínarækt og styrkt markaðsráðandi stöðu sína á markaðnum fyrir slátrun á svínum. Markaðurinn fyrir svínarækt og aðrir tengdir markaðir væru því mjög viðkvæmir í samkeppnislegu tilliti. Þá væru verulegar aðgangshindranir fyrir hendi og í ljósi þess að ekki væri til staðar kaupendastyrkur, sem líklegur væri til að draga með verulegum hætti úr markaðsstyrk Stjörnugríss, gæti félagið í krafti stöðu sinnar náð fram óeðlilegum samningsskilmálum eða gripið til samkeppnishamlandi aðgerða gagnvart keppinautum sínum. Hins vegar voru ekki skilyrði að lögum að grípa til íhlutunar í samrunann.

Með hliðsjón af þeirri niðurstöðu var það mat Samkeppniseftirlitsins að nauðsynlegt væri að koma á reglubundinni upplýsingagjöf Stjörnugríss um nánar tilgreind atriði til eftirlitsins í samræmi við 4. mgr. 19. gr. samkeppnislaga No. 44/2005. Þær upplýsingar myndu gera Samkeppniseftirlitinu kleift að meta hvort ástæða væri til sérstakra rannsókna á tilteknum atvikum eða leita sjónarmiða hagsmunaaðila.

Decisions
Case number

15 / 2011

Date
27 April 2011
Company

Stjörnugrís Ltd.

Industries

Food products

Consumer goods, operating supplies, etc.

Subjects

Other

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.