Logo Competition

Purchase of H-Fasteignir ehf. by Pennans ehf.

Analysis

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Pennans ehf. og H-Fasteigna ehf. Samruninn felur í sér að Penninn kaupir allan rekstur H-Fasteigna sem áður var rekinn af Hórasi ehf. Nánar tiltekið er um að ræða þann rekstur sem starfræktur er í verslunum sem reknar eru undir vörumerkinu The Viking. Penninn rekur 16 verslanir um land allt undir nafninu Penninn Eymundsson. Jafnframt rekur Penninn tvær ferðamannaverslanir undir merkjum Islandia. Starfsemi Pennans felst aðallega í sölu á bókum og tímaritum, húsgögnum, gjafavörum, föndurvörum, ritföngum, ásamt því að bjóða upp á heildarlausnir fyrir rekstur. H-Fasteignir er í grunninn fasteignafélag, en tók við rekstri verslana sem eru reknar undir merkjum The Viking í byrjun árs 2018. H-Fasteignir rekur því í dag fjórar verslanir með minjagripi og handverk ætlað erlendum ferðamönnum. Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði ekki til mydunar markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005.

Decisions
Case number

16 / 2018

Date
22. May 2018
Company

H-Fasteignir ehf.

Penninn ehf.

Industries

Consumer goods, operating supplies, etc.

Subjects

Merger case

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.