Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Icelandic Tank Storage ehf. á Birgðastöðinni Miðsandi ehf. og olíubirgðastöðinni að Litla-Sandi í Hvalfirði. Icelandic Tank Storage ehf. er einkahlutafélag í sameiginlegri eigu Atlantic Tank Storage ehf. og Olíudreifingar ehf. Icelandic Tank Storage ehf. starfrækir olíubirgðastöðvar í Helguvík og á Keflavíkurflugvelli, auk þess að leigja þær tvær olíubirgðastöðvar í Hvalfirði sem samruni þessi varðar og framleigja áfram til viðskiptavina sinna. Olíubirgðastöðin Miðsandi ehf. er í eigu Atlantic Tank Storage ehf. og á félagið eina olíubirgðastöð í Hvalfirði. Olíubirgðastöðin að Litla-Sandi er í eigu Olíudreifingar ehf. og hefur verið rekin sem veltuberandi rekstrareining hjá félaginu. Með samrunanum flyst eignarhald á birgðastöðvunum tveimur í Hvalfirði yfir til Icelandic Tank Storage ehf. Með samrunanum öðlast Olíudreifing ehf. og Atlantic Tank Storage ehf. einnig, í gegnum eignarhald sitt á Icelandic Tank Storage ehf., sameiginleg yfirráð yfir birgðastöðvunum tveimur í Hvalfirði. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að ekki er ástæða til að ætla að samruni þessi komi til með að hindra virka samkeppni í skilningi 17. gr. c samkeppnislaga á markaðnum fyrir leigu á plássi til geymslu á ótollafgreiddu eldsneyti til erlendra viðskiptavina sem stunda viðskipti með olíu á alþjóðlegum mörkuðum. Er þá einkum litið til þess að markaðshlutdeild samrunaaðila er slík að samruninn hindrar ekki virka samkeppni á hinum skilgreinda markaði. Að undangenginni rannsókn og virtum fyrirliggjandi gögnum málsins er það niðurstaða eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna þessa samruna á grundvelli 17. gr. c samkeppnislaga nr. 44/2005.
17 / 2016
Birgðastöðin Miðsandur ehf. og olíubirgðastöðin að Litla-Sandi í Hvalfirði
Icelandic Tank Storage ehf.
Consumer goods, operating supplies, etc.
Oil and gas
Merger case
"*" indicates required fields