Logo Competition

Samruni Birtings útgáfufélags ehf. og Útgáfufélagsins Fögrudyra ehf.

Analysis

Samkeppniseftirlitinu barst tilkynnt um kaup Birtings útgáfufélags ehf. á öllu hlutafé í Útgáfufélaginu Fögrudyrum ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Að mati Samkeppniseftirlitsins mun samlegðaráhrifa samrunans einkum gæta í kostnaði félaganna vegna útgáfu og prentunar tímarita. Ekki verður litið framhjá sérstöðu þess markaðar sem um ræðir. Íslenskum tímaritamarkaði hefur farið mjög hnignandi undanfarin ár og hafa útgefendur íslenskra tímarita átt erfitt uppdráttar. Til dæmis má nefna að félag um eignarhald á þeim tímaritum sem Birtingur eignaðist útgáfuréttinn að í september 2006 var tvisvar tekið til gjaldþrotaskipta á síðastliðnum þremur árum. Með vísan til þessa m.a. er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að samruninn hafi ekki skaðleg áhrif á samkeppni á þeim markaði sem um ræðir og ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna hans. 

Decisions
Case number

18 / 2007

Date
18. May 2007
Company

Birtingur útgáfufélag ehf.

Útgáfufélagið fögrudyr ehf.

Industries

Book publishing and sales

Consumer goods, operating supplies, etc.

Subjects

Merger case

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.