Logo Competition

Erindi Nýherja hf. og Öryggisþjónustunnar hf. um notkun Securifon-búnaðar á símstöðvum Pósts og síma

Analysis

Samkeppnisráð taldi að með því að heimila aðeins einu
öryggisþjónustufyrirtæki að hafa búnað til línuvöktunar inni á símstöðvum Pósts
og síma væri fyrirtækjum á sviði öryggisþjónustu mismunað og samkeppni milli
þeirra hindruð.

 Beindi samkeppnisráð því til Póst-
og símamálastofnunar að stofnunin tæki um það ákvörðun fyrir 1. júlí 1996 hvort
hún hygðist veita öryggisþjónustufyrirtækjum þjónustu sem tengdist vöktun
símalína og þá hvert fyrirkomulag yrði á þeirri þjónustu.

Ákvæði Póst- og símamálastofnun að veita nefnda þjónustu þyrfti stofnunin
að gæta þess að þjónustan yrði veitt öllum öryggisþjónustufyrirtækjum, sem
hennar óskuðu, á grundvelli hlutlægra og sanngjarnra reglna þannig að samkeppni
milli þeirra yrði ekki raskað af þeim sökum.

Decisions
Case number

20 / 1996

Date
22 May 1996
Company

Nýherji hf

Industries

Telecommunications, information technology and media

Other related telecommunications services

Subjects

Competition and the public sector

Search