Samkeppniseftirlitinu barst erindi frá samstarfsaðilum innan Frumtaks, þ.e. Frumtaks GP ehf. og Frumtaks slhf., þar sem óskað var eftir því að samstarf viðskiptabankanna Glitnis banka hf., Kaupþings banka hf. og Landsbanka Íslands hf. um áhættufjárfestingar í sprotafyrirtækjum í gegnum samlagshlutafélagið Frumtak yrði veitt undanþága frá bannákvæði 10. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 á grundvelli 15. gr. samkeppnislaga. Forsaga málsins var sú að Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hafði heimild samkvæmt lögum nr. 61/1997 um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, sbr. einnig lög nr. 133/2005 um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf., til að stofna samlagssjóð sem stæði að áhættufjárfestingum í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum. Samkvæmt 5. gr. laga nr. 133/2005 skyldi Nýsköpunarsjóður fá samtals 1.500 milljónir króna viðbótarframlag á árunum 2007 – 2009 til að standa undir hlutdeild sinni í stofnun slíkra nýrra samlagssjóða með lífeyrissjóðum og öðrum fjárfestum í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum, enda næmi eignarhlutur annarra en Nýsköpunarsjóðs í slíkum sjóði a.m.k. 50%. Í samræmi við forsendur fyrrnefnds lagaákvæðis leitaði Nýsköpunarsjóður því til viðskiptabankanna Glitnis banka hf., Kaupþings banka hf. og Landsbanka Íslands hf. auk nokkurra helstu lífeyrissjóða landsins, um þátttöku í verkefninu. Viðskiptabankarnir þrír féllust á þátttöku í samstarfsverkefninu og veittu framlög að fjárhæð 500 milljónir króna hver. Vegna þessa samstarfsverkefnis sóttu viðskiptabankarnir um undanþágu til Samkeppniseftirlitsins frá bannákvæðum samkeppnislaga við samstarfi keppinauta.
In its decision, the Competition Authority considered that the collaboration was likely to distort competition and noted in this context that the Icelandic banking market was a duopoly market where banks and savings banks operate primarily in the same markets and enjoy a dominant position there. The Competition Authority nevertheless decided to grant the collaboration a temporary exemption, but imposed conditions on the exemption which the partners agreed to comply with. These conditions are intended, among other things, to prevent the cooperation of the commercial banks through Frumtak from leading to further collusion between the banks, which could manifest itself in, for example, market sharing or the binding of parties, in which Frumtak invests, to further transactions or other additional obligations not related to the subject matter of the agreements.
20 / 2008
Frumtak GP ehf.
Frumtak slhf.
Glitnir banki hf.
Kaupthing Bank hf.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
Financial services
Exemptions
"*" indicates required fields