Logo Competition

Purchase of all shares in Ellingsen ehf. by S4S ehf.

Analysis

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup S4S ehf. á öllu hlutafé í Ellingsen ehf. Tilkynning um samrunann barst með bréfi dagsettu 30. desember 2016 en með bréfinu fylgdi samrunaskrá, sbr. 5. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga nr. 44/2005 og reglur nr. 684/2008 um tilkynningu samruna með síðari breytingum. Með bréfi dagsettu 13. janúar 2017 barst viðauki við samrunatilkynninguna þar sem veittar voru nánari upplýsingar um samrunann. Með kaupunum eignast S4S allt hlutfé í Ellingsen og verður hið keypta félag rekið sem dótturfélag S4S. S4S  starfar á markaði fyrir smásölu á skófatnaði annars vegar og á markaði fyrir heildsölu á skófatnaði hins vegar. Ellingsen starfar einnig á þeim mörkuðum en þó aðallega á markaði fyrir innflutning og sölu á útivistar- og lífstílsvörum. Áhrif samrunans mun þó einkum gæta á mörkuðunum fyrir smásölu á skófatnaði annars vegar og heildsölu á skófatnaði hins vegar þar sem starfsemi samrunaaðila skarast.  

Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni á mörkuðum málsins. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans.

Decisions
Case number

20 / 2017

Date
23. May 2017
Company

Ellingsen ehf.

S4S ehf.

Industries

Consumer goods, operating supplies, etc.

Various operating supplies not specified elsewhere

Subjects

Merger case

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.