Logo Competition

Merger of REA ehf. and Suðurflug ehf.

Analysis

Samkeppniseftirlitið hefur haft til skoðunar samruna REA ehf., móðurfélags Airport Associates, og Suðurflugs ehf. Airport Associates er flugþjónustuaðili á Keflavíkurflugvelli sem einkum þjónustar farþegaflug. Suðurflug er flugþjónustuaðili sem jafnframt starfar á Keflavíkurflugvelli og sinnir einkum öðru flugi en farþegaflugi, s.s. einkaflugi.

Undir meðferð málsins aflaði Samkeppniseftirlitið ýmissa gagna frá samrunaaðilum og hagsmunaaðilum, m.a. til þess að meta markaðshlutdeild á mörkuðum málsins.

Af gögnum málsins virtum er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að samruni REA ehf. og Suðurflugs ehf. leiði ekki til þess að markaðsráðandi staða verði til eða styrkist, eða að samkeppni verði raskað að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Af þeim sökum er það niðurstaða eftirlitsins að ekki séu forsendur til að aðhafast vegna þessa samruna.

Decisions
Case number

20 / 2020

Date
4. May 2020
Company

REA ehf.

Suðurflug ehf.

Industries

Air service

Transport and tourism

Subjects

Merger case

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.