Samkeppniseftirlitinu barst tilkynning um kaup SM fjárfestinga ehf, á öllu hlutafé IOD ehf. Var lagt mat á það hvort samruninn myndi hindra virka samkeppni með því að markaðsráðandi staða yrði til eða að slík staða myndi styrkjast. Athugun Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að þessi fyrirtæki starfa á ólíkum mörkuðum og að lítil skörun sé á milli þeirra. Það var því mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn myndi ekki hafa skaðleg samkeppnisleg áhrif og taldi eftirlitið því ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna hans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.
24 / 2007
IOD ehf.
SM Fjárfestingar ehf.
Consumer goods, operating supplies, etc.
Merger case
"*" indicates required fields