Logo Competition

Krafa um fjárhagslegan aðskilnað Borgarbyggðar á rekstri tjaldsvæðis

Analysis

Í ákvörðun þessari var tekin til skoðunar kvörtun frá rekstraraðila tjaldsvæðis og veitingahúss að Fossatúni á rekstri sveitarfélagsins Borgarbyggðar á tjaldsvæði í Borgarnesi. Þess var óskað að sveitarfélaginu væri gert að aðskilja rekstur tjaldsvæðisins rekstri sveitarfélagsins á grundvelli 14. gr. samkeppnislaga No. 44/2005. Að mati kvartanda bjóði tjaldsvæði Borgarbyggðar upp á meiri þjónustu en lágmarksþjónustu og rekstrartölur sýni að sveitarfélagið niðurgreiði rekstur tjaldsvæðisins. Ekki sé ljóst hvernig slíkur rekstur samrýmist lögbundum skyldum sveitarfélaga samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998.

Það var niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að á grundvelli 1. mgr. 7. gr. laga um sveitarfélög, 70. gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999 og úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála í máli nr. 6/1996 Grindavíkurbær gegn samkeppnisráði að sveitarfélögum sé heimilt að afmarka tjaldsvæði til að fólk geti fengið notið útivistar bjóði slík tjaldsvæði upp á lágmarksþjónustu. Í þeirri lágmarksþjónustu felst að boðið sé upp á fullnægjandi hreinlætisaðstöðu, aðstöðu til matar utandyra, aðgangs að rafstaurum með tenglum auk aðstöðu til að leggja húsbílum.

Í málinu var komist að þeirri niðurstöðu að ekki væru lagalegar forsendur til íhlutunar Samkeppniseftirlitsins í málinu þar sem á tjaldsvæði Borgarbyggðar í Borgarnesi sé eingöngu í boði sú lágmarksþjónsuta sem ferðamenn geri kröfu um í dag og tjaldsvæðið falli þannig innan þess ramma sem lögbundnar heimildir veita sveitarfélögum til rekstrar tjaldsvæða.

Decisions
Case number

25 / 2009

Date
30. June 2009
Company

Borgarbyggð

Steinar

Industries

Tourism

Transport and tourism

Subjects

Competition and the public sector

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.