Nýverið keyptu Hagar hf. sem reka verslanirnar Bónus, Hagkaup, 10-11, Útilíf, Zara, Debenhams og TopShop, fyrirtækið Res ehf. sem rekur verslanirnar Karen Millen, Warehouse, Shoe Studio, Whistles og All Saints. Um samruna er að ræða í skilningi samkeppnislaga. Samkeppniseftirlitið telur að ekki myndist markaðsráðandi staða á skilgreindum mörkuðum í kjölfar samrunans eða að slík staða styrkist. Hagar hf. séu að hefja rekstur á verslunum sem starfa á mörkuðum sem fyrirtækið hefur að óverulegu leyti starfað á áður og nokkur samkeppni ríkir á. Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að hafast að vegna samrunans.
26 / 2006
Hagar Ltd.
Res ehf.
Building and household goods (household appliances, clothes, cosmetics)
Consumer goods, operating supplies, etc.
Merger case
"*" indicates required fields