Logo Competition

Application by Tengir hf. and Míla ehf. for an exemption from competition law for the laying of fibre-optic cable

Analysis

Með ákvörðun nr. 26/2019, hefur Samkeppniseftirlitið heimilað Mílu hf. og Tengir hf. að eiga samstarf um lagningu ljósleiðara. Um er að ræða afmarkað verkefni í framkvæmd og tíma sem felst í því að Míla sér um lagningu á tveimur ljósleiðaraheimtaugum í þéttbýli Húsavíkur og selur Tengir annan strenginn að verkefni loknu. Tengir mun sjá alfarið um að tengja nýtt ljósleiðaranet við eigið fjarskiptanet og tengingar innanhúss fyrir endanotendur. Eftir afhendingu samkvæmt framangreindu verði samstarfi aðila á grundvelli samningsins lokið. Mun Míla og Tengir með framangreindu eignast tvö sjálfstæð ljósleiðaranet á Húsavík sem hvort um sig geti veitt fasta Internettengingu til neytenda.

Það er markmið með framangreindu samstarfi að auka hagkvæmni og hagræðingu við lagningu ljósleiðara og auk þess að lágmarka ónæði og röskun sem fylgir slíkum framkvæmdum í götum sem og á svæðum bæjar- og sveitarfélaga. Er þess vænst að samstarfið hafi jákvæð áhrif á samkeppni og auki valkosti neytenda með því að komið verði á fót tveimur sjálfstæðum ljósleiðaranetum á þeim svæðum þar sem samningur aðila nær til. Samstarfið mun einskorðast við að nýta sömu framkvæmdir til þess að leggja tvö ljósleiðaranet sem verði tæknilega aðskilin og sjálfstæð og skapa þannig grundvöll til samkeppni um hlutaðeigandi viðskiptavini.

Samstarfið er bundið skilyrðum sem m.a. miða að því að ljósleiðaranetin sem samstarfið nær til séu tæknilega aðskilin og sjálfstæð og skapi grundvöll til samkeppni um hlutaðeigandi viðskiptavini. Einnig er skilyrðunum ætlað að tryggja að samstarfið einskorðist við þetta og feli ekki í sér neins komnar samráð um aðra þætti, s.s. verð eða þjónustu til viðskiptavina.

The above authority is based on Article 15 of the Competition Act No. 44/2005, which authorises the Competition Authority to grant an exemption from the prohibition on illegal collusion in Article 10 of the Competition Act.

Decisions
Case number

26 / 2019

Date
23. August 2019
Company

Míla ehf.

Tengir hf

Industries

Fixed network (core network and services)

Subjects

Exemptions

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.