Logo Competition

Brot á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 36/2008 Samruni Teymis hf. og IP-fjarskipta ehf. og 10. gr. samkeppnislaga

Analysis

Samkeppniseftirlitið gerði húsleit á starfstöðvum Teymis, Og fjarskipta og Tals þann 7. janúar sl. Þann 26. janúar 2009 tók eftirlitið ákvörðun til bráðabirgða, nr. 1/2008, í því skyni að tryggja samkeppnislegt sjálfstæði Tals gagnvart Vodafone, á meðan á rannsókn stæði. Var mælt fyrir um breytingar á stjórnarskipan hjá Tali, auk þess sem tiltekin ákvæði í samningi Tals og Vodafone voru ógilt.  Með ákvörðun No. 8/2009, frá 27. febrúar sl., var að nýju mælt fyrir um aðgerðir til að tryggja samkeppnislegt sjálfstæði Tals. Komist var að þeirri niðurstöðu að Teymi og Og-fjarskipti hefðu brotið gegn 10. gr. samkeppnislaga og skilyrðum ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins No. 36/2008 með samstilltum aðgerðum og samkomulagi við IP fjarskipti ehf. (Tal) sem miðaði að því að draga úr samkeppnislegu sjálfstæði Tals og vinna gegn því að Tal keppti viðOg fjarskipti og með tilteknum ákvæðum í samningi Tals við Og fjarskipti um aðgang að farsímaneti, dags. 11. apríl 2008. Voru ákvæðin talin til þess fallin að draga úr samkeppni á markaði. Teymi greiðir 70 m.kr. í stjórnvaldssekt vegna brotanna. Jafnframt er mælt fyrir um að Teymi selji frá sér eignarhlut sinn í Tali innan tiltekinna tímamarka. Á meðan á sölumeðferð stendur er mælt fyrir um aðgerðir til að tryggja samkeppnislegt sjálfstæði Tals gagnvart Og-fjarskipti.

Decisions
Case number

27 / 2009

Date
2 July 2009
Company

Og fjarskipti ehf.

And Fjarskiptin hf. (Vodafone)

Síminn Ltd.

Tal

Teymi ehf.

Vodafone

Industries

Mobile phone network (infrastructure and services)

Fixed network (core network and services)

Telecommunications, information technology and media

Subjects

Market dominance

Illegal collusion

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.