Logo Competition

The acquisition by Vátryggingafélag Íslands hf. of all shares in Fossar Investment Bank hf.

Analysis

Með ákvörðun þessari var tekin afstaða til kaupa Vátryggingafélags Íslands hf. („VÍS“) á öllu hlutafé í Fossum fjárfestingarbanka hf. („Fossar“) en í honum fólst samruni í skilningi 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Samruninn var tilkynntur formlega til Samkeppniseftirlitsins þann 23. maí 2023. Tilkynningarskylda virkjaðist 14. júní 2023 og frestir byrjuðu að líða þann 15. júní 2023.

Athugun Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að að áhrif samrunans gæti fyrst og fremst á markaði fyrir eignastýringu. Aðrir markaðir málsins verða ekki fyrir neikvæðum láréttum áhrifum, eins og mál þetta lá fyrir, né að möguleg lóðrétt áhrif eða samsteypuáhrif samrunans væru skaðleg samkeppni. Ljóst er að sameinað félag getur orðið öflugur aðili á markaði fyrir eignarstýringu. Sömuleiðis liggur fyrir að á þeim markaði eru fleiri öflugir keppinautar, eins og bent er á í samrunaskrá.

Í þessu sambandi má benda á að í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 5/2019 Merger of Kviku bank hf. and Gamma Capital Management hf. var niðurstaða eftirlitsins sú að samstæða viðskiptabankanna fjögurra á markaði fyrir eignarstýringu í heild sinni væri sú að þeir héldu á samanlagt 80-90% af markaðnum. Engar vísbendingar vori um að sú staða hafi breyst í stórum dráttum. Þá má ætla að viðskiptavinir í eignastýringu, þá sérstaklega stofnanafjárfestar, veiti samkeppnislegt aðhald sem kaupendur viðkomandi þjónustu. Sömuleiðis var tekið fram að ekki bárust neinar neikvæð umsagnir um samrunann frá markaðsaðilum.

Það var niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að ekki væru forsendur til íhlutunar vegna viðskiptanna. Þannig væru ekki vísbendingar fyrir hendi sem gæfu tilefni til þess að ætla að markaðsráðandi staða væri að myndast eða styrkjast á tilgreindum mörkuðum málsins eða samkeppni myndi raskast að öðru leyti með umtalsverðum hætti.

Decisions
Case number

27 / 2023

Date
14. July 2023
Company

Fossar fjárfestingabanki hf.

Glymur hf.

Líftryggingafélag Íslands hf.

SIV eignastýring hf.

Vátryggingafélag Íslands hf.

Industries

Financial services

Subjects

Merger case

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.