Logo Competition

Mál Tannsmiðafélags Íslands gegn Tryggingastofnun ríkisins

Analysis

Tannsmiðir gerðu kröfu um að Tryggingastofnun ríkisins semdi við þá
umlögboðnar endurgreiðslur vegna sjúkratryggðra á sama hátt og samið hafi verið
við

Tannlæknafélag
Íslands um endurgreiðslur. Ákvörðun samkeppnisráðs var eftirfarandi: „Með
hliðsjón af markaðsráðandi stöðu Tryggingastofnunar ríkisins, sem kaupanda á
tannlækna- og tannsmíðaþjónustu fyrir elli- og örorkulífeyrisþega og þá sem
slysatryggðir eru samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 117/1993, telur
samkeppnisráð að synjun Tryggingastofnunar ríkisins á gerð samnings við
tannsmíðameistara sem sérhæfðir eru í smíði á lausum gervigómum, um lögboðnar
endurgreiðslur vegna fyrrgreindra skjólstæðinga Tryggingastofnunar, hafi
skaðleg áhrif á samkeppni í skilningi 17. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993 og
stríði gegn markmiði laganna, sbr. 1. gr. þeirra.

Að mati
samkeppnisráðs getur það ekki samrýmst samkeppnislögum að byggja synjun á gerð
slíks samnings á því að tannsmiðir tilgreini fyrirfram þá tannlækna sem þeir
hyggist skipta við á grundvelli samnings þeirra við Tryggingastofnun ríkisins.

 Með vísan til 17.
gr. samkeppnislaga beinir samkeppnisráð þeim fyrirmælum til Tryggingastofnunar
ríkisins að ganga til samninga við tannsmíðameistara sem sérhæfðir eru í smíði
á lausum gervigómum, um lögboðnar endurgreiðslur fyrir elli- og
örorkulífeyrisþega og þá sem slysatryggðir eru samkvæmt almannatryggingalögum,
á þeim grundvelli sem markaður er í almannatryggingalögum.“

Decisions
Case number

29 / 1997

Date
1. September 1997
Company

Tannsmiðafélag Íslands

Industries

Specialist services and other services

Various services not specified elsewhere

Subjects

Competition and the public sector

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.