Logo Competition

Brot Símans hf. með tilboði í 3G netlykil og áskrift

Analysis

Síminn misnotaði markaðsráðandi stöðu sína með tilboðinu sem fyrirtækið gerði notendum sumarið 2009 í „3G netlykill og áskrift fyrir 0 kr. í allt sumar“. Er Símanum gert að greiða 60 milljónir króna í stjórnvaldssekt.

Í umræddu tilboði Símans fólst að nýjum viðskiptavinum Símans í gagnaflutnings-þjónustu, þar sem 3G netlykill er notaður, var boðinn frír 3G netlykill og frí áskrift að þjónustunni í allt að þrjá mánuði gegn bindingu í viðskiptum í sex mánuði. Fjarskiptafyrirtækið Nova kvartaði til Samkeppniseftirlitsins yfir tilboðinu. Tók Samkeppniseftirlitið interim decision dags. 2. júlí 2009, þar sem Símanum var bannað að bjóða umrætt tilboð.

Í endanlegri ákvörðun, dags. 16. september sl., kemst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi verið með markaðsráðandi stöðu á viðkomandi markaði. Jafnframt er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Síminn hafi misnotaði þá stöðu sína með undirverðlagningu í framangreindu tilboði. Í undirverðlagningu felst í aðalatriðum að markaðsráðandi fyrirtæki selur vöru eða þjónustu undir kostnaðarverði.

Háttsemi Símans fólst í aðgerðum sem ekki gátu talist til eðlilegrar samkeppni í skilningi samkeppnislaga og er. Símanum gert að greiða 60 milljónir króna í stjórnvaldssekt.

Decisions
Case number

30 / 2011

Date
20. September 2011
Company

Síminn Ltd.

Industries

Mobile phone network (infrastructure and services)

Telecommunications, information technology and media

Subjects

Market dominance

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.