Logo Competition

Kaup Eignarhaldsfélagsins Fjarskipta ehf. á öllu hlutafé í IP Fjarskiptum ehf.

Analysis

Samkeppniseftirlitið hefur haft til rannsóknar samruna sem felst í kaupum Eignarhaldsfélagsins Fjarskipta ehf. (Vodafone) á öllu hlutafé í IP-Fjarskiptum ehf. (Tal). Hefur eftirlitið komist að þeirri niðurstöðu, í ákvörðun sem birt er í dag, að samruni Vodafone og Tals myndi leiða til verulega aukinnar samþjöppunar á fákeppnismarkaði og til tvíkeppni á ýmsum undirmörkuðum á sviði fjarskipta. Án íhlutunar yrði staðan sú að aðeins tveir stórir aðilar, Síminn og Vodafone, myndu bjóða heildstæða fjarskiptaþjónustu, auk þess sem nokkrir minni aðilar myndu veita þjónustu á tilteknum afmörkuðum sviðum á smásölumarkaði. Tal er mikilvægur keppinautur bæði Símans og Vodafone þar sem félagið býður upp á heildarlausnir á sviði fjarskipta á smásölumarkaði og er með meiri breidd í þjónustuframboði en aðrir keppinautar Símans og Vodafone. Þessi þrjú fyrirtæki eru hin einu hér á landi sem veita heildarfjarskiptaþjónustu á smásölumarkaði sem m.a. heimili nýta sér. Minni keppinautar á fjarskiptamarkaði eru háðir Símanum og Vodafone um aðgang að fjarskiptanetum þeirra á heildsölustigi til þess að geta veitt fjarskiptaþjónustu í samkeppni við Símann og Vodafone á smásölumarkaði. Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að samruninn myndi draga verulega úr kaupendastyrk þessara minni keppinauta á heildsölustigi og veikja þannig samkeppnisstöðu þeirra.

Tal hefur einbeitt sér að því að veita Símanum og Vodafone verðsamkeppni og boðið neytendum upp á ýmsar nýjungar. Þá hafa eldri úrlausnir Samkeppniseftirlitsins sýnt að Tal hefur veitt a.m.k. Vodafone mikið samkeppnislegt aðhald, sbr. t.d. ákvörðun þess nr. 27/2009 Brot á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 36/2008 Samruni Teymis hf. og IP-fjarskipta ehf. og 10. gr. samkeppnislaga. Samruni Tals og Vodafone er því til þess fallinn að valda neytendum alvarlegu samkeppnislegu tjóni á mikilvægu sviði viðskipta.

Samrunaaðilar lögðu fram tillögur að skilyrðum til þess að vinna gegn þeim samkeppnishömlum sem Samkeppniseftirlitið telur stafa af samrunanum. Eins og rökstutt er í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins eru þessar tillögur ófullnægjandi og því ógildir eftirlitið samrunann.

Decisions
Case number

31 / 2011

Date
5. October 2011
Company

IP Telecommunications Ltd

And Fjarskiptin hf. (Vodafone)

Industries

Mobile phone network (infrastructure and services)

Telecommunications, information technology and media

Subjects

Merger case

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.