Í mars á þessu ári keypti Glitnir banki hf. 19,95% af 20,00% hlutafjáreign Kaupþings banka hf. í Kreditkortum hf. Eftir kaupin á Glitnir banki hf. 54,95% alls hlutafjár í Kreditkortum hf. Um er að ræða samruna í skilningi samkeppnislaga. Á sama tíma seldi Glitnir banki hf. Kaupþing banka hf. 18,45% af 18,50% hlutafjáreign sinni í VISA Ísland – Greiðslumiðlun hf. Samkeppniseftirlitið telur, að við kaup Glitnis banka hf. á megin hluta Kaupþings banka hf. í Kreditkortum hf., myndist ekki markaðsráðandi staða á skilgreindum mörkuðum eða að slík staða styrkist. Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að hafast að vegna samrunans.
32 / 2006
Glitnir banki hf.
Kreditkort ehf.
Financial services
Payment card operations
Merger case
"*" indicates required fields