Logo Competition

Merger of Hópsnes ehf. and Hringrás hf.

Analysis

Með bréfi dags. 30. ágúst 2019, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um fyrirhuguð kaup Hópsness ehf. (Hópsnes) á öllu hlutafé í Hringrás hf. (Hringrás). 

Starfsemi sú er mál þetta varðar er á markaði fyrir meðhöndlun úrgangs og undirmörkuðum hans, þ.á m. á markaði fyrir söfnun endurvinnsluefna. Í þessu máli er að meginstefnu um að ræða samsteypusamruna Hópsness ehf. og Hringrásar, sem starfa aðeins að nokkru leyti til á sömu eða tengdum mörkuðum. Þannig er það starfsemi Hópsness, í gegnum dótturfélag sitt HP Gáma, sem skarast þá helst við starfsemi Hringrásar við móttöku og meðhöndlun brotajárns takmörkuð. Þá liggur fyrir að keppinautar með umtalsverðan markaðsstyrk munu áfram starfa á mörkuðum málsins.

Markaðir fyrir meðhöndlun úrgangs á Íslandi eru að mati Samkeppniseftirlitsins að miklu leyti samþjappaðir og starfa tiltölulega fá fyrirtæki á þessu sviði. Af þeim sökum er því að mati eftirlitsins tilefni til þess að fylgjast vel með samþjöppun á þessum mörkuðum og mögulegu samstarfi keppinauta. Að gögnum málsins virtum er það þó niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að kaup Hópsness á öllu hlutafé í Hringrás leiði ekki til þess að markaðsráðandi staða verði til eða styrkist, eða að samkeppni verði raskað að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Af þeim sökum er það niðurstaða eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna þessa samruna, s.s. með íhlutun í formi ógildingar eða setningu skilyrða.

Decisions
Case number

32 / 2019

Date
17 October 2019
Company

Hópnes ehf

Hringrás Ltd

Industries

Container service

Environmental issues

Subjects

Merger case

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.