Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið hafnaði því að veita efnislega umsögn um erindi sem
borist hafði frá læknum í Læknastöðinni Álfheimun74. Var því haldið fram af
ráðuneytinu að skýring 1. mgr. 2. gr. samkeppnislaga réðist af greinargerð með
henni í frumvarpi að lögunum, þannig að merking hennar væri í raun mun þrengri
en orð hennar segðu til um. Samkeppnisráð féllst ekki á þetta. Orðalag
greinargerðarinnar yrði með vísan til lögskýringarsjónarmiða að víkja að því
leyti sem það samrýmdist ekki skýru og afdráttarlausu orðalagi lagagreinarinnar
og vilja löggjafans.
Af ákvæðum samkeppnislaga og ummælum í
lögskýringargögnum yrði ráðið að undir lögin féllu opinber fyrirtæki eða fyrirtæki
sem störvuðu að einhverju leyti í skjóli opinbers einkaleyfis eða verndar í
þeim tilvikum þegar þau hin sömu fyrirtæki stunduðu samkeppnisrekstur og röskuðu
samkeppni á markaði þar sem sérfræðingar í læknastétt hefðu haslað sér völl.
Með vísan til framanritaðs gerði samkeppnisráð þá kröfu að heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið gæfi efnislega umsögn um ofangreint erindi innan
fjögurra vikna þannig að unnt yrði að taka tillit til sem flestra sjónarmiða
við úrlausn þess.
34 / 1994
Læknastöðinni Álfheimum 74
Health and social affairs
Services of self-employed healthcare professionals
Competition and the public sector
"*" indicates required fields