Vallarvinir ehf.
kvörtuðu yfir samkeppnishindrunum sem starfsemi fyrirtækisins mætti á
Keflavíkurflugvelli. Um var að ræða afgreiðslu flugvéla en veiting starfsleyfa
hefði lotið ýmsum hömlum m.a. af hálfu Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli.
Samkeppnisráð taldi að Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. hefði með því að synja
Vallarvinum um aðstöðu til innritunar og farþegaþjónustu brotið gegn 17. gr. samkeppnislaga.
Þeim fyrirmælum var beint til Flugstöðvarinnar að semja við Vallarvini um
nauðsynlega aðstöðu til innritunar og farþegaþjónustu.
Í úrskurði
sínum nr. 1/2001 lagði áfrýjunarnefnd fyrir Flugstöðina að finna viðunandi
lausn innan þriggja vikna á þeim álitaefnum um afgreiðsluaðstöðu sem málið
fjallaði um og gera Vallarvinum kleift að stunda starfsemi sína óháð starfsemi
Flugleiða.
35 / 2000
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf
Vallarvinir ehf
Specialist services and other services
Competition and the public sector
"*" indicates required fields