Logo Competition

Endurskoðun skilyrða samkvæmt ákvörðun Samkeppnisráðs nr. 20/2005. Samruni FL Group hf. Bláfugls hf. og Flugflutninga ehf.

Analysis

Aðdraganda þessa máls má rekja til ákvörðunar samkeppnisráðs nr. 20/2005 þar sem Samruna FL Group hf., Bláfugls hf., og Flugflutninga ehf. voru sett skilyrði sem nánar eru tilgreind í 1.-11. gr. í ákvörðunarorði. Skilyrðin áttu m.a. að tryggja viðskiptalegt sjálfstæði Bláfugls og Flugflutninga og að þessi fyrirtæki gætu veitt Icelandair Cargo fulla og óskoraða samkeppni í flugflutningum til og frá Íslandi. Samkvæmt ákvörðuninni bar jafnframt að taka til skoðunar fyrir 1. júlí 2007 hvort breyttar aðstæður myndu kalla á endurskoðun á skilyrðum hennar. Í málinu hóf Samkeppniseftirlitið því skoðun á því hvort þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar í fyrri ákvörðunum samkeppnisráðs hefðu breyst. Gagnaöflun varð hins vegar tafsamari en ætla mátti. Umbeðnum gögnum frá aðilum málsins var í verulegum atriðum áfátt. Þá bentu þau gögn sem Samkeppniseftirlitið hafði fengið í hendur til þess að þörf væri á frekari rannsókn varðandi aðstæður á markaðnum. Að öllu framangreindu virtu og í ljósi þess tímaramma sem endurskoðunarákvæði ákvörðunar nr. 20/2005 kveður á um, var það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að nauðsynlegt væri að viðhalda um þriggja mánaða skeið öllum þeim skilyrðum sem kveðið er á um í ákvörðuninni.

Decisions
Case number

35 / 2007

Date
6. July 2007
Company

Bláfugl hf.

FL Group hf

Flugflutningar ehf.

Industries

Air service

Transport and tourism

Subjects

Merger case

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.