Logo Competition

Samkomulag fjármálaráðuneytisins f.h. ríkissjóðs, efnahags- og viðskiptaráðuneytisins, fjármálafyrirtækja og hagsmunasamtaka atvinnulífsins um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja

Analysis

Á fundi hinn 15. nóvember 2010 kynntu fulltrúar efnahags- og viðskiptaráðuneytisins Samkeppniseftirlitinu fyrirhugað samkomulag um samræmda úrlausn skuldavanda fyrirtækja með sérstakri áherslu á litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Samkomulagið byggir á eldra samkomulagi Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) um gerð samræmdra verklagsreglna um aðferðafræði við endurskipulagningu fyrirtækja í samræmi við ákvæði laga nr. 107/2009, um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrirhrunsins. Á fundinum kom fram ósk um að Samkeppniseftirlitið veitti aðilum samkomulagsins undanþágu frá 10. gr. samkeppnislaga No. 44/2005 við ólögmætu samráði, sbr. 15. gr. sömu laga.

Með heimild í 15 . gr. samkeppnislaga No. 44/2005 veitir Samkeppniseftirlitið fjármálaráðuneytinu f.h. ríkissjóðs, efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, Félagi atvinnurekenda, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fjármálafyrirtækja f.h. aðildarfélaga og Dróma hf. og Viðskiptaráði Íslands heimild til þess að gera og framkvæma samkomulag um aðferðafræði við mat á skuldavanda fyrirtækja og endurskipulagningu þeirra. Tekur heimild þessi til þeirra reglna sem ofangreindir aðilar rituðu undir hinn 15. desember 2010 og kynntar hafa verið undir heitinu: „Samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Decisions
Case number

35 / 2010

Date
16. December 2010
Company

fjármálafyrirtæki og hagsmunasamtök atvinnulífsins

Industries

Financial services

Subjects

Competition and the public sector

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.