Logo Competition

Yfirtaka Byrs sparisjóðs á Byr hf.

Analysis

Byr sparisjóður tilkynnti Samkeppniseftirlitinu um yfirráð sín yfir Byr hf. Byr sparisjóð er stýrt af skilanefnd sem sett var yfir félagið af Fjármálaeftirlitinu. Byr hf. hefur með höndum þann bankarekstur sem áður tilheyrði Byr sparisjóð. Samkeppniseftirlitið taldi að samkeppnislegt sjálfstæði Byrs hf. kynni að vera skert með samrunanum ekki hvað síst í ljósi þess að sú staða gæti komið upp að sömu kröfuhafar yrðu áberandi beggja megin, þ.e. hjá Byr sparisjóð annars vegar og Kaupþingi og/eða Glitni banka hins vegar en þeir eru stærstu eigendur Arion banka og Íslandsbanka. Kæmi sú staða upp gæti hún raskað samkeppni. Voru samrunanum sett skilyrði í framhaldi af viðræðum við aðila málsins, í því skyni að tryggja samkeppnislegt sjálfstæði Byrs. Felst í skilyrðunum að Byr sparisjóður skuldbindur sig til þess að tryggja samkeppnislegt sjálfstæði Byrs hf. m.a. með því að tryggja að í stjórn Byrs hf. sitji einstaklingar sem eru óháðir öðrum viðskiptabönkum og sparisjóðum sem starfa á sama markaði.

Decisions
Case number

36 / 2010

Date
22. December 2010
Company

Byr sparisjóður og Byr hf.

Industries

Financial services

Subjects

Merger case

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.