Logo Competition

Purchase of Sigurbjörn ehf by Rammi hf

Analysis

Með bréfi dags. 19. september 2019, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um fyrirhuguð kaup Ramma hf. (Rammi) á öllu virku hlutafé í Sigurbirni ehf. (Sigurbjörn) Að mati Samkeppniseftirlitsins felur framangreindur gerningur í sér samruna sem er tilkynningarskyldur í skilningi 17. gr. a. laganna.

 Starfsemi Ramma felst í rækjuvinnslu á Siglufirði og fiskvinnslu í Þorlákshöfn. Félagið á frystitogarann Sólberg og fer vinnsla fram um borð í honum. Sigurbjörn starfrækir fiskvinnslu í Grímsey. Þá er heill fiskur endurseldur af bátum félagsins á fiskmarkaði innanlands.

 Í samrunaskrá segir að starfsemi beggja samrunaaðila snúi að útgerð, þ.e.a.s. markaði fyrir veiðar á fiski við Ísland, auk fiskvinnslu og sölu á sjávarafurðum. Starfsemi félaganna sé því á sama sviði og um láréttan samruna að ræða.

 Samkvæmt Fiskistofu um úthlutun heildarafla eftir þorskígildum fyrir fiskveiðiárið 2019/2020, má ætla að eftir samrunann yrði heildaraflamagn samrunaaðila af heildarúthlutun afla slíkt að samruni félaganna leiði ekki til þess að markaðsráðandi staða verði til eða styrkist á markaði fyrir veiðar á botnfiski við Ísland.

 Að gögnum málsins virtum er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að kaup Ramma á Sigurbirni gefi ekki ástæðu til að aðhafast, s.s. með íhlutun í formi ógildingar eða setningu skilyrða.

 

 

Decisions
Case number

36 / 2019

Date
29. October 2019
Company

Rammi Ltd.

Sigurbjörn ehf.

Industries

Consumer goods, operating supplies, etc.

Fisheries and fish processing

Subjects

Merger case

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.