Logo Competition

Purchase by GÞ holding ehf. of all shares in Gámaþjónustunni ehf.

Analysis

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna GÞ holding ehf. og Gámaþjónustunnar ehf. Eigendur GÞ holding eru annars vegar eignarhaldsfélagið Barone I ehf., sem er í eigu einkafjárfesta, og hins vegar SÍA III slhf. sem er framtakssjóður í rekstri sjóðastýringarfyrirtækisins Stefnis ehf., dótturfélags Arion banka. Í kjölfar viðskiptanna verður Gámaþjónustan undir sameiginlegum yfirráðum þessara félaga en starfsemi félagsins er á sviði sorphirðu fyrir fyrirtæki og sveitarfélög auk þess sem félagið sinnir söfnun endurvinnsluefna. Þá rekur félagið móttöku- og flokkunarstöð ásamt endurvinnslustöð fyrir almenning í Hafnarfirði. Þá er jafnframt rekin jarðgerðarstöð af hálfu fyrirtækisins sem framleiðir moltu. Innan samstæðu félagsins eru jafnframt fyrirtæki í tengdri starfsemi s.s. Efnamóttakan sem er sérhæfð í móttöku spilliefna og raftækjaúrgangs og svo Hafnarbakki-Flutningatækni ehf. sem sinnir ýmsum innflutningi fyrir samstæðuna. 

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að engin samþjöppun á sér stað á skilgreindum mörkuðum málsins í kjölfar samrunans. Hins vegar hafa verið sett skilyrði í málinu sem ætlað er að tryggja samkeppnislegt sjálfsstæði Gámaþjónustunnar gagnvart Arion banka hf. og keppinautum félagsins með mögulegt sameiginlegt eignarhald. Þá eru einnig í gildi skilyrði sem tryggja eiga samkeppnislegt sjálfsstæði Stefnis hf. gagnvart Arion banka hf. sbr. skilyrði sem sett voru samhliða ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 7/2014 Kaup Bekei hf. á Bakkanum vöruhóteli o.fl. Að undangenginni rannsókn er það niðurstaða eftirlitsins að umrædd skilyrði leysi þá samkeppnisbresti sem ella hefðu stafað af samrunanum.

Decisions
Case number

37 / 2017

Date
20. October 2017
Company

Gámaþjónustan hf.

GÞ holding ehf.

Industries

Container service

Environmental issues

Subjects

Merger case

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.