Með bréfi, dags. 23. júní sl., var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna Línuhönnunar hf. og Verkfræðistofu Suðurlands ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.
39 / 2008
Samruni Línuhönnunar
Verkfræðistofa Suðurlands
Specialist services and other services
Self-employed professionals (lawyers, auditors, architects, engineers, veterinarians, other consultants)
Merger case
"*" indicates required fields