Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Horns IV slhf. á hlut í S4S ehf., sem rekur verslanir á Íslandi með fatnað, skó, íþrótta- og tómstundabúnað. Horn IV er sérhæfður framtakssjóður (e. private equity fund) sem er rekinn af Landsbréfum hf., dótturfélagi Landsbankans hf. Sjóðurinn er samlagshlutafélag sem rekið er sem lokaður sjóður með um 30 fagfjárfesta sem hluthafa. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að engin samþjöppun á sér stað á skilgreindum mörkuðum málsins í kjölfar samrunans. Sett hafa verið skilyrði í málinu og að undangenginni rannsókn er það niðurstaða eftirlitsins að umrædd skilyrði leysi þá samkeppnisbresti sem ella hefðu stafað af samrunanum.
4 / 2022
Horn IV Ltd.
S4S ehf.
Consumer goods, operating supplies, etc.
Various consumer goods not specified elsewhere (speciality shop)
Merger case
"*" indicates required fields