Samkeppniseftirlitinu barst samrunatilkynning þann 18. september 2009 vegna samruna Kaupfélags Skagfirðinga svf. og Mjólku ehf./Eyjabú ehf. Taldi Samkeppniseftirlitið samrunann andstæðan markmiðum samkeppnislaga. Samruninn féll hins vegar ekki undir gildissvið samkeppnislaga vegna undanþáguákvæðis búvörulaga og því skorti lagaheimild til að grípa til íhlutunar.
Samkeppniseftirlitið beindi aftur á móti áliti til landbúnaðarráðherra, sbr. álit No. 1/2009 Skaðleg samþjöppun í mjólkuriðnaði og áhrif búvörulaga á samkeppni þar sem því er beint til ráðherra að samkeppnishamlandi ákvæðum búvörulaga verði breytt þannig að samkeppni fái þrifist í mjólkuriðnaði til hagsbóta fyrir bændur og neytendur.
40 / 2009
Kaupfélag Skagfirðinga Ltd.
Mjólka ehf./Eyjabú ehf.
Agriculture
Consumer goods, operating supplies, etc.
Merger case
"*" indicates required fields