Kvartað var yfir akstri sérleyfishafans Austurleið á
skólaakstursleiðinni Selfoss-Hvolsvöllur fyrir nemendur Fjölbrautaskóla
Suðurlands. Tilboði kvartanda í skólaaksturinn hafði verið tekið. Samkeppnisráð
taldi að háttsemi Austurleiðar fæli í sér misnotkun á markaðsráðandi stöðu og
beindi þeim fyrirmælum að fyrirtækinu að láta af hinni samkeppnishamlandi
háttsemi sem stunduð væri í skjóli sérleyfis og opinberra styrkja.
[Máli þessu var áfrýjað; sjá Úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála í máli nr. 1/1999]
45 / 1998
Bergur Sveinbjörnsson
Tourism
Transport and tourism
Competition and the public sector
"*" indicates required fields