Logo Competition

Review of the decision of the Competition Authority No. 40/2014, Abuse of Securitas hf.'s dominant market position

Analysis

Þann 19. desember 2014 komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Securitas hf. hefði brotið gegn 11. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 og 54. gr. EES-samningsins, sbr. Decision No. 40/2014, Misnotkun Securitas hf. á markaðsráðandi stöðu sinni, og lagði á Securitas kr. 80 millj. stjórnvaldssekt. Brot Securitas fólust í því að fyrirtækið gerði einkakaupasamninga við viðskiptavini sína um Heimavörn og Firmavörn, en samningarnir fólu í sér að viðskiptavinunum var óheimilt að eiga viðskipti við aðra þjónustuaðila um nokkurra ára skeið. Einnig voru í samningunum ákvæði sem voru til þess fallin að skapa aukna tryggð viðskiptavina við Securitas.

Securitas kærði þessa ákvörðun til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sbr. mál nr. 1/2015. Með kærunni voru lögð fram gögn sem ekki lágu fyrir þegar Samkeppniseftirlitið tók ákvörðun sína. Taldi Securitas að þessar nýju upplýsingar hefðu þýðingu við mat á háttsemi fyrirtækisins sem leiddi til Decision no. 40/2014. Nýju upplýsingarnar lutu að kostnaði Securitas við gerð viðskiptasamninga um öryggisþjónustu. Undir meðferð áfrýjunarnefndar óskaði Securitas því eftir endurupptöku á Decision No. 40/2014, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.  

Samkeppniseftirlitið féllst á að endurupptaka málið á grundvelli ákveðinna forsendna sem nánar eru raktar hér í ákvörðuninni. Var í endurupptekna málinu lagt nýtt mat á kostnað Securitas við gerð viðskiptasamninga um öryggisþjónustu auk þess sem tekið var til skoðunar hvort upplýsingagjöf Securitas sem leiddi til ákvörðunar nr. 40/2014 hefði verið í samræmi við 19. gr. samkeppnislaga. Málinu lauk með sátt Samkeppniseftirlitsins og Securitas þar sem fyrirtækið gengst við að hafa brotið gegn 11. og 19. gr. samkeppnislaga og 54. gr. EES-samningsins og greiðir stjórnvaldssekt að fjárhæð kr. 40. millj. auk þess sem lögð eru ákveðin skilyrði á Securitas.

Decisions
Case number

45 / 2017

Date
15 December 2017
Company

Securitas Ltd.

Industries

Specialist services and other services

Various services not specified elsewhere

Subjects

Market dominance

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.