Með bréfi, dags. 26. júlí 2007, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um kaup Fóðurblöndunnar hf. (FB) á öllum hlutum Mjólkurfélags Reykjavíkur hf. (MR) og Kornax ehf. í Kornhlöðunni ehf. Með samrunanum voru eignartengslinn milli FB, MR og Kornax rofin í samræmi við skilyrði sem Samkeppniseftirlitið setti fyrir samruna FB og Áburðarverksmiðjunnar ásamt öðrum á síðasta ári. Athugun Samkeppniseftirlitsins leiddi ekki í ljós nein atriði sem bentu til þess að samruninn myndi raska samkeppni. Að mati Samkeppniseftirlitsins er því ekki ástæða til þess að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.
47 / 2007
Fóðurblandan Ltd.
Kornhlaðan ehf.
Agriculture
Consumer goods, operating supplies, etc.
Merger case
"*" indicates required fields