Með bréfi dags. 13. júlí sl., var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna Gámaþjónustu Austurlands ehf. og Sjónaráss ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.
53 / 2007
Gámaþjónusta Austurlands ehf.
Sjónaráss ehf.
Rubbish (collection and disposal)
Environmental issues
Merger case
"*" indicates required fields