Með bréfi dags. 6. september 2007, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um að FoodCo hf. hafi keypt eignir og rekstur veitingastaðanna Kaffi Sólon og Sjávarkjallarans af Borgarbræðrum hf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar með eru veltuskilyrði ákvæðisins uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.
62 / 2007
FoodCohf.
Kaffi Sólon
Sjávarkjallarinn
Consumer goods, operating supplies, etc.
Merger case
"*" indicates required fields