Kvartað var yfir
samkeppnishindrunum Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins. Samkeppnisráð
beindi ákveðnum fyrirmælum til stofnunarinnar: „Allar
efnislýsingar, verklýsingar, forskriftir og hvers konar upplýsingar sem
stofnunin hefur gefið út vegna viðgerða á steinsteypu þar sem tiltekin eru
vörumerki í dæmaskyni, en unnt er að lýsa efninu með tækniforskriftum, eða þar
sem bent er á tilgreind fyrirtæki til viðskipta, hvort sem er í prentuðu máli
eða á tölvutæku formi, verði innkallaðar fyrir 1. maí 1998.
Þess skal vandlega gætt
að leiðbeiningar Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins, í hvaða formi sem þær
eru, séu þannig úr garði gerðar að þær mismuni ekki þeim fyrirtækjum sem á
markaðnum starfa eða þeim efnum sem á markaðnum eru.“
7 / 1998
Steinprýði ehf
Construction services
Production of building materials
Competition and the public sector
"*" indicates required fields