Samkeppniseftirlitinu barst tilkynning þar sem fram kom að Penninn hf. hefði keypt verslunarrekstur Bókabúðar Keflavíkur ehf. Af upplýsingum sem fram komu í tilkynningunni er ljóst að samlegðaráhrifa samrunans myndi fyrst og fremst gæta við smásölu á bókum, tímaritum og skrifstofuvörum. Ljóst var að staða Pennans er almennt mjög sterk á þeim sviðum viðskipta. Hins vegar voru samlegðaráhrif samrunans talin óveruleg þar sem Bókabúð Keflavíkur starfar á litlum landfræðilegum markaði þar sem Penninn starfrækir ekki aðrar bóka- eða ritfangaverslanir. Í ljósi þessa og með hliðsjón af öðrum gögnum málsins taldi Samkeppniseftirlitið samrunann ekki hindra virka samkeppni í skilningi samkeppnislaga og því ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna hans.
7 / 2006
Bókabúð Keflavíkur ehf.
Penninn hf.
Book publishing and sales
Consumer goods, operating supplies, etc.
Merger case
"*" indicates required fields