Mælt var fyrir um fjárhagslegan aðskilnað milli rannsóknarstofu
Hollustuverndar og annarra sviða stofnunarinnar.
„1. Stofnuð verði sérstök eining um
rekstur rannsóknastofu Hollustuverndar ríkisins. Reikningshald hennar skal vera
sjálfstætt. Reikningsskil skulu gerð í samræmi við meginreglur laga um
ársreikninga og skulu þau liggja fyrir opinberlega með sambærilegum hætti og
almennt gerist.
2. Gera skal sérstakan stofnefnahagsreikning. Skulu þær eignir sem
teljast til rannsóknastofunnar metnar á markaðsverði ef þess er kostur en
annars á endurkaupsverði að frádregnum hæfilegum afskriftum.
3. Með skuldum rannsóknastofunnar skulu teljast skuldbindingar sem
tengjast starfsemi hennar.
4. Öll viðskipti milli rannsóknastofunnar og annarra sviða
Hollustuverndar skulu verðlögð á markaðsverði eins og um viðskipti milli
óskyldra aðila væri að ræða. Ef markaðsverð liggur ekki fyrir skal miðað við
kostnaðarverð að viðbættri hæfilegri álagningu.
5. Gjaldskrá skal standa undir rekstrarkostnaði
rannsóknastofunnar auk hæfilegrar álagningar eins og um sjálfstæðan rekstur
væri að ræða.“
8 / 1997
Research service Sýni Ltd.
Specialist services and other services
Various services not specified elsewhere
Competition and the public sector
"*" indicates required fields