Logo Competition

Merger of Haga hf., Olíuverzlun Íslands hf. and DGV ehf.

Analysis

Samkeppniseftirlitið hefur birt ákvörðun
nr. 9/2019, Samruni Haga hf.,
Olíuverzlunar Íslands hf. og DGV ehf
. Ákvörðunin er grundvölluð á sáttum
Samkeppniseftirlitsins og samrunaaðila, dags. 8. og 11. september 2018. Hagar
eru stærsti smásali landsins á dagvörum og rekur félagið verslanir Bónus og
Hagkaupa. Olís er einn stærsti smásali eldsneytis á Íslandi. DGV er
fasteignafélag.

Rannsókn málsins leiddi í ljós að
samruninn, án skilyrða, væri til þess fallinn að raska samkeppni með
umtalsverðum hætti. Nánar tiltekið var það mat eftirlitsins að samruninn myndi
styrkja markaðsráðandi stöðu Haga á dagvörumarkaði, leiða til staðbundinnar
röskunar á samkeppni á tilteknum landssvæðum, hafa skaðleg áhrif á heildsölu-
og birgðastigi og hafa í för með sér aukin og skaðleg eignatengsl á milli
keppinauta á bæði eldsneytis- og dagvörumarkaði.

Rannsókn málsins lauk með undirritun sátta
á milli Samkeppniseftirlitsins og samrunaaðila. Annars vegar sáttar við Haga
dags. 11. september og hins vegar sáttar við FISK-Seafood ehf. og Kaupfélag
Skagfirðinga svf. dags. 8. september 2018. Með sáttunum skuldbinda
samrunaaðilar sig til aðgerða sem miða að því að efla og vernda virka samkeppni
á eldsneytis- og dagvörumörkuðum og bregðast við framangreindri röskun á
samkeppni sem samruninn myndi annars leiða til.

Skilyrðin fólu m.a. í sér sölu eigna á
eldsneytis- og dagvörumörkuðum. Var sölu eigna á dagvörumarkaði einkum ætlað að
bregðast við styrkingu á markaðsráðandi stöðu Haga á dagvörumarkaði. Að
undangenginni sölumeðferð og athugun óháðs kunnáttumanns, sem skipaður var í
október 2018 til að hafa eftirlit með framkvæmd sáttarinnar, samþykkti
Samkeppniseftirlitið kaupendur hinna seldu eigna í lok nóvember 2018. Í
kjölfarið var Högum heimilt að framkvæma samrunann.

Samantekt á niðurstöðu málsins og þeim
skilyrðum sem sett hafa verið vegna samrunans er að finna í kafla V.6 í
ákvörðuninni.

Ákvörðunin er grundvölluð á fyrrgreindum
sáttum og tilgangur hennar er að veita samrunaaðilum, keppinautum þeirra, öðrum
fyrirtækjum sem telja sig hafa hagsmuna að gæta og öðrum þeim sem hafa áhuga á
samrunanum, upplýsingar og skýringar á markmiði þeirra ráðstafana sem fram koma
í sáttinni.

Decisions
Case number

9 / 2019

Date
3. April 2019
Company

DGV ehf.

Hagar hf.

Olíuverzlun Íslands hf.

Industries

Food products

Consumer goods, operating supplies, etc.

Oil and gas

Subjects

Merger case

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.