Logo Competition

Beiðni um álit á mismunandi tollflokkun kókódrykksins „Jibbí“ og „MS“ kókómjólkur

Analysis

Óskað var álits á því að
kókódrykkurinn Jibbí skyldi bera 24,5% vsk. en MS kókómjólk og innflutt
Nesquick kókómjólk 14% vsk. Fjármálaráðuneytið gaf m.a. þá skýringu að MS
kókómjólk væri mjólkurafurð en kókódrykkurinn Jibbí ekki. Eftirfarandi kom
fram: „Kókódrykkurinn Jibbí er framleiddur úr undanrennudufti, smjöri og vatni
auk fleiri efna. Samkvæmt efnagreiningu, sem framkvæmd var hjá
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins eru nánast sömu efni í Jibbí og MS kókómjólk.
Í framleiðslu Sólar hf.[ eru prótein og fita 4,9% og vatn 83,4%. Í framleiðslu
MS eru prótein og fita 4,2% og vatn 85,6%. Helsti munur á þessum vörum virðist
vera sá að vatnið í MS kókómjólkinni kemur úr kúnni, en hjá Sól hf. er vatninu
bætt í vöruna í framleiðslunni.“ Samkeppnisráð beindi þeim tilmælum til
fjármálaráðuneytisins að tollflokkun kókódrykksins Jibbí yrði endurskoðuð með
það að markmiði að gjaldskylda virðisaukaskatts yrði með sama hætti og gilti
fyrir hliðstæðar vörur svo sem MS kókómjólk. Þess skyldi gætt að
samkeppnisaðilum væri ekki mismunað og samkeppnisstaða þeirra skekkt með
mismunandi gjaldtöku af hliðstæðum vörum.

Opinion
Case number

10 / 1997

Date
13. November 1997
Company

Sól hf

Industries

Consumer goods, operating supplies, etc.

Subjects

Competition and the public sector

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.