Logo Competition

Erindi Arnóls ehf. vegna túlkunar ríkisskattstjóra á undanþáguákvæðum virðisaukaskattslaga

Analysis

Erindi barst frá félagi sem rekur veitingahús með
kvörtun yfir samkeppnisstöðu þess gagnvart keppinautunum Þjóðleikhúsinu og
Þjóðleikhúskjallaranum annars vegar og Iðnó og Iðnó við Tjörnina hins
vegar,  vegna undanþáguákvæðis
virðisaukaskattslaga.
Í ljósi þess að kvartandi var a.m.k að hluta til á
sama markaði og önnur leikhús og keppti þar af leiðandi við þau, skekkti það að
mati samkeppnisráðs samkeppnisstöðu fyrirtækisins að geta ekki keppt á
jafnræðisgrundvelli vegna þess að fyrirtækið nyti ekki sömu undanþágu til að
greiða ekki virðisaukaskatt af aðgöngumiðum og keppinautarnir. Það er
grundvallaratriði í samkeppnisrétti að fyrirtæki á sama markaði búi við sömu
samkeppnisskilyrði og þá sérstaklega hvað varðar túlkun opinberra aðila á lögum
og reglugerðum. Samkeppnisráð taldi túlkun ríkisskattstjóra á 4. tl. 3. mgr. 2.
gr. laga nr. 50/1988, eins og hún kom fram í bindandi áliti ríkisskattstjóra,
leiða til samkeppnislegrar mismununar milli keppinauta og raska þar með samkeppni.
Samkeppnisráð beindi þeim tilmælum til ríkisskattstjóra að hann beitti sér
fyrir því að samskonar reglur giltu að þessu leyti gagnvart öllum keppinautum.

Opinion
Case number

5 / 2000

Date
29. May 2000
Company

Arnól ehf

Industries

Specialist services and other services

Subjects

Competition and the public sector

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.