Logo Competition

Meint mismunun á endurgreiðslu virðisaukaskatts af starfi sjálfstætt starfandi sérfræðinga fyrir hið opinbera

Analysis

Kvartað var yfir
mismunun sem túlkun ríkisskattstjóra á endurgreiðslu virðisaukaskatts fæli í
sér á samkeppnisaðstöðu sumra sérfræðinga.

Samkeppnisráð taldi
að ákvæði 5. tl. 12. gr. í reglugerð nr. 248/1990, eins og það var orðað og
embætti ríkisskattstjóra túlkaði það, skaðaði samkeppnisstöðu þeirra
sérfræðinga er almennt þjóna viðskiptalífinu en hafa ekki háskólamenntun eða
aldeilis sambærilega menntun. Ákvæðið mismunaði sérfræðingum, þ.á m.
kerfisfræðingum, sem seldu ríki, sveitarfélögum og stofnunum þeirra þjónustu
sína og raskaði innbyrðis samkeppnisstöðu þeirra. Ennfremur taldi samkeppnisráð
að ákvæðið gæti mismunað sérfræðingum eftir því hvaða félagsform væri á rekstri
þeirra. Það var mat Samkeppnisráðs að orðalag og túlkun skattayfirvalda á
ákvæði 5. tl. 12. gr. reglugerðar um virðisaukaskatt hindraði og takmarkaði frelsi
í atvinnurekstri og aðgang nýrra keppinauta að markaðnum og stríddi gegn
markmiði samkeppnislaga um að efla virka samkeppni í viðskiptum.

Samkeppnisráð gerði
tillögu um að reglugerð nr. 248/1990 yrði breytt á þann veg að orðalag hennar
gæfi ekki tilefni til þeirrar þröngu túlkunar sem skattayfirvöld hefðu gripið
til. 

Opinion
Case number

7 / 1995

Date
26. October 1995
Company

Fjármálaráðuneyti

Rafn Guðmundsson

Industries

Specialist services and other services

Subjects

Competition and the public sector

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.