Í erindi frá hóteli á
landsbyggðinni var óskað eftir því að Samkeppnisstofnun kannaði hvort ráðstöfun
fjárveitingar á fjárlögum ársins 1995, til eflingar á markaðsstarfi
heilsárshótela á landsbyggðinni, raskaði samkeppnisstöðu landsbyggðarhótela. Það var álit samkeppnisráðs
að styrkur sem ellefu heilsárshótelum á landsbyggðinni var veittur í samræmi við
tillögur sérstakrar úthlutunarnefndar gæti haft skaðleg áhrif á samkeppnina á
markaðnum fyrir heilsárshótel á landsbyggðinni og farið gegn markmiði
samkeppnislaga. Samkeppnisráð beindi þeim tilmælum til samgönguráðherra að við
framkvæmd styrkveitinga á vegum ráðuneytisins í framtíðinni yrði höfð hliðsjón
af ákvæðum samkeppnislaga.
7 / 1996
Hótel Reynihlíð við Mývatn
Transport and tourism
Competition and the public sector
"*" indicates required fields