Kvartað
var yfir afskiptum Brunamálastofnunar ríkisins af kaupum sveitarfélaga á
slökkvibifreiðum. Samkeppnisráð beindi þeim tilmælum til Brunamálastofnunar
ríkisins að leiðbeiningar stofnunarinnar til sveitarstjórna um allt það sem
lyti að brunavörnum mismunaði ekki þeim sem á viðkomandi mörkuðum störfuðu og
skaðaði þar með ekki samkeppnina. Skyldi haga störfum stofnunarinnar á þann
hátt að allir sem þess óskuðu hefðu jafna möguleika á að bjóða sveitarfélögum
slökkvibifreiðar og slökkvibúnað. Þess skyldi vandlega gætt að leiðbeiningar
Brunamálastofnunar væru óhlutdrægar, almennar og málefnalegar.
8 / 1997
Specialist services and other services
Competition and the public sector
"*" indicates required fields