Samkeppniseftirlitið birtir í dag skýrslu nr. 1/2015, Leiðbeining um samkeppni á dagvörumarkaði – Staða samkeppninnar 2015. Í skýrslunni kemur eftirfarandi m.a. fram:
- Heldur hefur dregið úr markaðshlutdeild Haga frá árinu 2009. Á sama tíma hafa nýir aðilar náð að auka hlutdeild sína. Þannig eru vísbendingar um að samþjöppun sé smám saman að minnka, a.m.k. um stundarsakir. Áfram er þó mikil samþjöppun á dagvörumarkaði. Ekki eru komnar fram vísbendingar um að staða Haga sem markaðsráðandi aðila á markaðnum hafi breyst (kafli 3).
- Verðhækkanir á dagvöru undanfarið skýrast ekki einvörðungu af ytri aðstæðum. Þannig hefur verð á innfluttum vörum ekki lækkað til samræmis við gengisstyrkingu og verðþróun erlendis síðustu misserin. Á sama tíma hefur afkoma helstu verslanasamstæðna almennt verið góð. Mikilvægt er að neytendur njóti styrkingar á gengi og bættrar afkomu í gegnum lægra vöruverð (kafli 4).
- Talsvert skortir á að birgjar hafi sýnt fram á að verðmunur í samningum þeirra við annars vegar stærri verslanakeðjur og hins vegar smærri verslanir byggist á málefnalegum forsendum, s.s. vel rökstuddum kostnaðarútreikningum, en Samkeppniseftirlitið varpaði ljósi á þennan verðmun með skýrslu nr. 1/2012, Verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði. Þó eru vísbendingar um að almennt hafi dregið úr samkeppnishamlandi verðmismun frá árinu 2012 (kafli 5).
- Núgildandi samningar um skilarétt dagvöruverslana á vörum til birgja geta stuðlað að sóun á matvælum og þar með hærra vöruverð (kafli 5).
- Stjórnvöld hafa í mörgum tilvikum látið hjá líða fara taka tillit til leiðbeininga og tilmæla samkeppnisyfirvalda um að skapa aðstæður fyrir samkeppni og nýta hvata samkeppninnar í landbúnaði (kafli 2).
- Companies in the grocery market have in many cases failed to follow the guidance that the Competition Authority has issued to them in recent years. As a result, the Competition Authority has repeatedly had to intervene in the activities of companies, interventions that could easily have been avoided had they followed the authority's guidance (Chapter 2).
Með hliðsjón af framangreindu beinir Samkeppniseftirlitið því til aðila á markaði og stjórnvalda að grípa til eftirfarandi aðgerða:
- Stjórnvöld verða að beita sér fyrir aukinni samkeppni, m.a. með opnun markaða og endurskoðun á samkeppnishindrandi ákvæðum búvöru- og tollalaga (kafli 2).
- Birgjar og dagvöruverslunin verða að endurskoða viðskiptasamninga sína og fara að leiðbeiningum Samkeppniseftirlitsins (kafli 2 og 5).
- Samtök fyrirtækja á dagvörumarkaði þurfa að beita sér fyrir bættri samkeppnismenningu í sínum röðum, sem m.a. felst í því að tryggja að samkeppnislögum og þeim leikreglum sem lesa má út úr framkvæmd laganna sé fylgt (kafli 2).
- Mikilvægt er að neytendur og samtök sem bera hag þeirra fyrir brjósti sýni fyrirtækjum á dagvörumarkaði aðhald með öllum tiltækum ráðum. Aðhald neytenda getur haft mikla þýðingu til þess að tryggja að bættar ytri aðstæður skili sér í lægra verði og að nýlegar breytingar á opinberum gjöldum leiði ekki til hærra vöruverðs en óhjákvæmilegt er (kafli 4).
- The current returns arrangement for grocery stores to supply companies needs to be reviewed, with the aim of increasing retailers' incentive for efficient stock management, which, all else being equal, should lead to lower prices and reduce food waste (Chapter 5).
Background information:
Í skýrslunni sem nú er kynnt er nánar tiltekið að finna eftirfarandi umfjöllun:
- Dregnar eru saman í heildstætt yfirlit þær leiðbeiningar um efni samkeppnislaga og háttsemi á dagvörumarkaði, sem samkeppnisyfirvöld hafa beint til fyrirtækja, samtaka þeirra og stjórnvalda á liðnum árum og misserum. Skýrslan er að þessu leyti liður í því að styrkja leiðbeiningarstarf Samkeppniseftirlitsins, en það er eitt af áhersluatriðum í starfi þess.
- Settar eru fram nýjar upplýsingar um markaðshlutdeild dagvöruverslana á landinu öllu og skipt niður á einstök landsvæði. Jafnframt er fjallað um þróun markaðshlutdeildar frá árinu 1999.
- Fjallað um verðþróun frá útgáfu skýrslu Samkeppniseftirlitsins nr. 1/2012, Verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði, og þeirri spurningu svarað hvort verðþróun skýrist af ytri aðstæðum, eins og leitt var líkum að í skýrslu nr. 1/2012.
- An account is given of the Competition Authority's investigations into the commercial agreements between suppliers and grocery retailers since the publication of the aforementioned report no. 1/2012. The Competition Authority's position on how to reduce so-called food waste in the retail sector is also set out.