Logo Competition

Kvörtun Aðalstöðvarinnar vegna Ríkisútvarpsins

Analysis

Kvartað var yfir
því að RÚV misbeitti markaðsyfirráðum stofnunarinnar með því að veita afslátt
frá staðfestum auglýsingataxta og bryti þannig gegn samkeppnislögum.

Samkeppnisráð taldi
að það hefði ekki verið í samræmi við markmið samkeppnislaga þegar RÚV bauð
afslátt á auglýsingum í textavarpi ef auglýst var í öðrum miðlum
stofnunarinnar. Ríkisútvarpið dró tilboðið um afslátt til baka eftir
athugasemdir samkeppnisyfirvalda. Ekki var talin frekari ástæða að grípa til aðgerða
samkeppnisráðs á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.

Að mati
Samkeppnisráðs þótti ljóst að ýmis atriði skekktu samkeppnisstöðu einkarekinna
ljósvakamiðlafyrirtækja og takmörkuðu aðgang þeirra að markaðnum, einkum þeirra
sem aðeins rækju hljóðvarpsstöðvar. Talin voru upp atriði sem ollu
samkeppnislegri mismunun útvarpsstöðva og samkeppnisyfirvöld töldu ástæðu til
að vekja sérstaka athygli á með hliðsjón af markmiði samkeppnislaga. Taldi
ráðið æskilegt að við samningu nýrra útvarpslaga yrði tekið tillit til þessara
atriða.

Opinion
Case number

5 / 1995

Date
3. July 1995
Company

Aðalstöðin

Industries

Telecommunications, information technology and media

Subjects

Competition and the public sector

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.