Logo Competition

Google's 360 billion króna fine confirmed in Luxembourg

10 November 2021

Almenni dómstóll Evrópusambandsins (e. General Court)
staðfesti í dag 2,4 milljarða evra sekt sem framkvæmdastjórn ESB lagði á
bandaríska tæknifyrirtækið Google árið 2017 fyrir misnotkun á markaðsráðandi
stöðu á EES-svæðinu. Upphæðin nemur ríflega 360 milljörðum króna en Google
getur áfrýjað málinu til Evrópudómstólsins, sem er æðsta dómstigið innan
Evrópusambandsins. Málið var til rannsóknar í um sjö ár en að auki eru tvö
önnur mál tengd Google til rannsóknar hjá samkeppnisyfirvöldum í Evrópu.

Málið sem dæmt var í hjá almenna dómstólnum í Lúxemborg í
dag snýr að því að Google hafi misnotað aðstöðu sína sem eigandi leitarvélar
með yfirburðar markaðsstöðu til að koma á framfæri sínum eigin
vefverslunarþjónustum á kostnað minni keppinauta.

Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að brot Google hafi ekki
verið jafn alvarleg og kom fram í niðurstöðu framkvæmdastjórnarinnar en engu að
síður var sektarfjárhæðin staðfest. Árið 2017 var sektarfjárhæðin, 2,4
milljarðar evra, sú hæsta í sögunni en ári síðar var Google sektað um 4,34
milljarða evra fyrir annað brot. Það mál snerist um samkeppnishamlandi notkun Google á Android-stýrikerfinu í því
skyni að verja ráðandi stöðu á leitarvélamarkaðnum.

Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins, undir stjórn Danans
Margrethe Vestager, eru með nokkrar rannsóknir í gangi á mögulegum brotum
annarra svokallaðra „tæknirisa“ á borð við Amazon, Apple og Facebook. Þá er ný
samkeppnislöggjöf, Digital Markets Act, í smíðum innan Evrópusambandsins sem er
ætlað að ná betur utan um hinn ört stækkandi stafræna markað. Einnig er
sambærileg vinna í gangi hjá yfirvöldum í Danmörku og víðar.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.