Logo Competition

The Competition Authority's 2021 Annual Report has been published.

28 March 2022

Ársskýrsla Samkeppniseftirlitsins fyrir 2021 er komin
út. Í skýrslunni er starf eftirlitsins á árinu reifað, en í henni er meðal
annars farið yfir tölulegar upplýsingar, rannsóknir og verkefni á árinu,
málsvarahlutverk Samkeppniseftirlitsins auk þess sem birtar eru áherslur næstu
ára, yfirlit yfir stjórnvaldssektir og margt fleira.

Leitast er við að setja upplýsingar fram á einfaldan
og gagnsæjan hátt en í skýrslunni er að finna fjölda hlekkja sem gefa lesanda
tækifæri til að kafa dýpra í vissa þætti.

Hér má nálgast ársskýrslu Samkeppniseftirlitsins 2021.

Úr inngangi Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra:

„Árið 2021 var annasamt í meira lagi. Í skýrslu
þessari er greint frá fjölbreyttum verkefnum þar sem Samkeppniseftirlitið rækti
málsvara- og leiðbeiningarhlutverk sitt með útgáfu fjölda skýrslna, umsagna og
álita, pistla og þátttöku á fundum og ráðstefnum.

Einnig voru miklar annir við rannsóknir mála, en árið
einkenndist af auknu verkefnaálagi vegna rannsókna á tilkynntum samrunum, en
rúmlega þriðjungi ráðstöfunartíma eftirlitsins var varið í samrunamál, í
samanburði við um 20% árin á undan. Stærstur hluti þeirra var afgreiddur á svokölluðum
I. fasa, þ.e. innan 25 virkra daga, en sumir vörðuðu mikilvæga almannahagsmuni
og kölluðu á umfangsmiklar rannsóknir.“

Úr ávarpi Sveins Agnarssonar, stjórnarformanns:

„Við aðstæður sem þessar [áhrif COVID-19 og innrás
Rússa í Úkraínu] er mikilvægt að virk samkeppni fái notið sín og hugað sé vel
that
því hvernig breytingar á einstökum mörkuðum geta riðlað
stöðu fyrirtækja og gert nýjum keppinautum erfitt að fóta sig. Öflug samkeppni
kemur einnig í veg fyrir að fyrirtæki velti kostnaðarhækkunum yfir á neytendur
í stað þess að mæta þeim með því að hagræða í rekstri.

Virk samkeppni og festa í framfylgd samkeppnislaga er
vísasta leiðin til að hraða endurreisn atvinnulífs og búa íslenskt hagkerfi
undir þær breytingar sem framundan eru, ekki eingöngu í þeim atvinnugreinum sem
faraldurinn lék hvað verst, heldur einnig á öðrum sviðum, svo sem á vettvangi
stafrænnar starfsemi og aðgerða til að draga úr hlýnun jarðar.“

Forsida-2021

Forsida-Arsskyrsla

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.