
Ársþing Alþjóðasamtaka samkeppniseftirlita, eða ICN
(International Competition Network), var sett í Búdapest í Ungverjalandi í dag.
Ráðstefnan stendur fram á föstudag og verður með rafrænu sniði þetta árið.
ICN fagnar um þessar mundir 20 ára afmæli sínu en samtökin
voru stofnuð á fundi í New York í Bandaríkjunum í október 2001 með það fyrir
augum að efla tengsl samkeppnisyfirvalda innbyrðis og þannig auka þekkingu
þeirra sem starfa við rekstur samkeppnismála. Stofnfundinn sátu fulltrúar 14
samkeppniseftirlita en í dag telja samtökin rúmlega 140 eftirlitsstofnanir frá
öllum heimshornum.
https://www.youtube.com/watch?v=JcPaUVYeuXE
Að venju er um lokuð fundahöld að ræða en á föstudaginn
tekur fulltrúi Samkeppniseftirlitsins, Guðmundur Haukur Guðmundsson, þátt í
pallborðsumræðum ásamt fulltrúum frá Bandaríkjunum og Ekvador. Umræðuefnið
verður ávinningur af alþjóðlegu samstarfi í gegnum ICN.
Hér má kynna sér dagskrá ársþingsins og annað sem við kemur
ráðstefnunni.
"*" indicates required fields