
Héraðsdómur Reykjavíkur tók í dag fyrir mál Eimskips gegn Samkeppniseftirlitinu sem fyrirtækið höfðaði til að koma í veg fyrir rannsókn eftirlitsins á ætluðu ólögmætu samráði fyrirtækisins við Samskip. Við fyrirtökuna kom fram að Eimskip hefur nú ákveðið að falla frá málinu.
Forsaga málsins er að þann 1. júlí 2019 krafðist Eimskip þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði um það annars vegar að rannsókn Samkeppniseftirlitsins á ætluðu ólögmætu samráði fyrirtækisins við Samskip væri ólögmæt og að henni skyldi hætt og hins vegar að aflétt yrði haldi sem hafði verið lagt á gögn fyrirtækisins við húsleitir hjá því 10. desember 2013 og 4. júní 2014 og að afritum gagnanna yrði eytt.
Til stuðnings kröfum sínum hefur Eimskip byggt m.a. á því að rannsókn málsins hafi tekið óeðlilega langan tíma, að Samkeppniseftirlitið hafi blekkt dómstóla, að haldlagning gagna í húsleitunum hafi verið ólögmæt og að starfsmenn eftirlitsins séu vanhæfir þar sem þeir hafi tekið þátt í rannsókn lögreglu á þætti stjórnenda Eimskips í hinu ætlaða samráði. Þá hefur Eimskip byggt á því að Samkeppniseftirlitið hafi brotið mannréttindi Eimskips, m.a. þar sem eftirlitið hafi fellt niður rannsókn á hinum ætluðu brotum en síðan haldið henni áfram. Samkeppniseftirlitið hefur fyrir dómstólum rökstutt að ekkert sé hæft í þessum málatilbúnaði Eimskips.
Afdrif málatilbúnaðar Eimskips fyrir dómstólum hefur verið eftirfarandi:
Krafa Eimskips um að rannsókn verði hætt:
Krafan vegna húsleitargagna:
Background information:
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins beinist að því hvort Eimskip og Samskip hafi haft með sér ólögmætt samráð á mörkuðum fyrir sjóflutninga, flutningsmiðlun og landflutninga og brotið gegn 10. gr. samkeppnislaga og 53. gr. EES-samningsins. Hófst þessi rannsókn í kjölfar ábendinga frá bæði viðskiptavinum og keppinautum Eimskips og Samskipa.
Samkeppniseftirlitið hefur haft möguleg brot fyrirtækjanna til samfelldrar rannsóknar og er hún vel á veg komin. Meðal annars hefur Samkeppniseftirlitið gefið fyrirtækjunum kost á að tjá sig um frummat eftirlitsins, en eftirlitið gætir andmælaréttar fyrirtækja í málum af þessu tagi með því að gefa út svokallað andmælaskjal. Í málsmeðferðarreglum Samkeppniseftirlitsins kemur fram að í andmælaskjali „The main events of the case shall be described and the basis for it reported in outline, that certain circumstances or conduct may contravene the provisions of competition law..“
Eimskipi og Samskipum hefur verið gefið tækifæri til að nýta andmælarétt sinn í tveimur áföngum. Fyrra andmælaskjalið var birt fyrirtækjunum þann 6. júní 2018 og þeim boðið að koma að athugasemdum og sjónarmiðum sínum á framfæri. Samskip hefur ekki nýtt sér rétt sinn til þess að tjá sig um þetta andmælaskjal. Eimskip óskaði ítrekað eftir auknum fresti en skilaði athugasemdum 16. mars 2020. Síðara andmælaskjalið var birt fyrirtækjunum 13. desember 2019. Athugasemdir bárust ekki frá fyrirtækjunum innan þess frests sem upphaflega var gefinn og hafa þau aftur farið fram á aukinn frest.
Mál þetta sætir forgangi hjá Samkeppniseftirlitinu. Er umfang rannsóknarinnar, þar á meðal undirliggjandi gagnamagn, án fordæma við rannsókn samkeppnismála hér á landi.
"*" indicates required fields